Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari U-19 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu valdi í dag 26 manna úrtakshóp sem æfir dagana 8.og 9.febrúar. Ólafur valdi Sabrínu Lind Adolfsdóttur í hópinn en æfingarnar fara fram í Reykjavík og eru liður í undirbúningi liðsins fyrir þátttöku í milliriðli EM sem fram fer í Króatíu í apríl.
ÍBV óskar Sabrínu Lind innilega til hamingju með þennan árangur.