Fótbolti - 2. flokkur karla leikur mikilvægan leik!

11.sep.2013  14:54

Leika gegn Haukum á sunnudag 14:45

2. flokkur karla í knattspyrnu leikur gríðarmilvægan leik gegn Haukum á sunnudaginn (15. sept.) kl: 14:45. Þessi leikur getur ráðið úrslitum um hvort liðið fer upp um deild og leikur í A-deild að ári. Þetta yrði í fyrsta skipti í 12 ár sem að 2. flokkur ÍBV ætti lið í efstu deild. ÍBV á eftir tvo leiki báða heima og þurfa sigur í báðum, og komast upp ná þeir sigrunum. Við viljum hvetja alla til að fjölmenna á völlinn og hvetja strákana til dáða. Leikvöllur hefur ekki verið ákveðinn en við skellum inn upplýsingum hér á síðuna þegar það er ljóst. Stöðuna má sjá hér.