Stuðningsmenn ÍBV ætla að hittast klukkan 15:00 á 900 Grillhúsi þar sem boðið verður upp á ýmis tilboð. Endilega mæta á svæðið og byggja upp stemmningu fyrir leik! Við hvetjum alla til að mæta á völlinn og styðja við ÍBV. Stjórn, leikmenn og þjálfarar voru gríðarlega ánægð með stemmninguna á síðasta leik og vonum innilega að það haldi áfram því það getur skipt sköpum í leikjum sem þessum.
Þetta verður fyrsti leikurinn sem fyrrum fyrirliði ÍBV, Andri Ólafsson, mætir á Hásteinsvöll eftir að hann gekk til liðs við KR, tölum ekki meira um það.