Svava Tara Ólafsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir voru báðar valdar til æfinga með U-19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Liðið æfir á Reykjavíkursvæðinu um næstu helgi. Þessar æfingar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðil Evrópumóts landsliða sem leikinn verður í Portúgal í mars.
Þjálfarar liðsins eru Ólafur Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamningju með þennan árangur.