Stórleikur er á Hásteinsvellinum á morgun, miðvikudaginn 8. ágúst, klukkan 18:00. Þá taka Eyjamenn á móti KR.
Mikil spenna er fyrir leiknum en fyrri leikur liðanna í Pepsí deildinni endaði með 3 - 2 sigri KR. Við hvetjum alla stuðningsmenn ÍBV til að mæta á leikinn og styðja sitt lið.