Kvennalið ÍBV er búið að spila 4.leiki að undanförnu. Liðið byrjaði á því að steinliggja fyrir liði FH 5-1. Staðan í hálfleik var 1-1 og var einnig þannig þegar 25.mín voru eftir en þá gerðu FH stúlkur hvert markið fætur öðru. Mark ÍBV gerði Danka úr víti.
Helgina á eftir sigraði ÍBV lið Hauka 7-1. Mörkin gerðu Berglind Björg 2, Anna Þórunn 2, Danka 1, Kristín 1 og María Davis 1.
Daginn eftir gerði liðið svo jafntefli við Fjölni. Kristín Erna gerði mark ÍBV.
Um síðustu helgi lék liðið svo gegn Aftureldingu í Faxaflóamótinu og sigraði 4-1. Mörkin gerðu Kristín Erna 2, Berglind 1 og Danka 1.
Um næstu helgi fara einhverjar stúlkur á landsliðsæfingar og stefnt að því að fá æfingaleiki fyrir aðra leikmenn liðsins.