Strákarnir léku æfingaleik gegn Leikni Reykjavík í vikunni og gerðu 3-3 jafntefli.
Markamaskínan Tryggvi Guðmundsson gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum. Kallinn er sjóðandi um þessar mundir og er búinn að gera tvær þrennur á stuttum tíma núna.
Maggi þjálfari notaði tækifærið og prufaði tvo leikmenn sem eru á reynslu í leiknum. Hollenskan miðvörð og enskan markvörð.
sjá meira.
Strákarnir spila í kvöld aftur við Leikni í Íslandsmótinu innanhús í íþróttahúsi Kórsins í Kópavogi kl. 20:00.
Á laugardag spila þeir við Keflavík í Reykjaneshöllinni kl. 10:00 um morguninn.