Guðlaugur Baldursson stýrði ÍBV í sínum fyrsta opinbera leik um helgina er strákarnir léku gegn Fylki í Reykjaneshöllinni. Árangurinn þokkalegur, 1-1 jafntefli. Báðum við hann að leggja aðeins frá sér skólakrítina og kennaraprikið og svara örfáum spurningum á skömmum tíma. Hann hafði þetta að segja er hann var spurður um leikinn.
Hvað fannst þér um frammistöðu strákanna í fyrsta leiknum gegn Fylki ?Ég var sáttur við margt í okkar leik sérstaklega varnarvinnu liðsins og baráttugleði leikmanna.
Það hljóta að hafa verið vonbrigði að missa niður síðbúið forskotið ?Við viljum að sjálfsögðu vinna hvern leik sem við förum í, auðvitað er svekkjandi að fá á sig mark svo seint í leiknum en á þessum tíma ársins reynum að skoða alla þætti leiksins ekki bara úrslitin. Í leiknum voru margir jákvæðir punktar en aðrir þættir sem við þurfum að gera betur.
En hvernig fannst þér andstæðingurinn í leiknum ?
Mér finnst Fylkisliðið gott, vel spilandi lið með marga mjög efnilega stráka.
Nú var Jeffsy með í þessum leik. Hvenær koma hinir útlendingarnir ?
Það er ekki komin dagsetning á það ennþá. Þeir verða allavega með okkur í æfingaferðinni í Portúgal í byrjun apríl.
Þarna voru ungir strákar að koma inn eins og Adólf, Sæþór og Hrafn. Hvað viltu segja um leik þeirra á sunnudag ? Ég var nokkuð ánægður með liðið í heild sinni og þessir strákar sem þú nefnir skiluðu allir góðu verki.