Íþróttaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns – Tilvalinn Páskagjöf
Verður haldinn föstudaginn langa 3. apríl og laugardaginn 4. apríl milli kl 11:00-12:00 báða dagana.
Íþróttaskólinn er fyrir krakka fædda 2020, 2021 og 2022.
Allir þátttakendur fá páska glaðning.
Verð er aðeins 3.900 kr.
Stjórnendur skólans verða leikmenn og þjálfarar mfl kvenna og karla.
Skráningafrestur er til 2. apríl og þau sem bóka fyrir þann tíma er tryggð páskagjöf.
Þetta er tilvalin páskagjöf til krakkanna frá mömmu og pabba eða afa og ömmu. Þar sem gjöfin inniheldur þá öflugan íþróttaskóla sem og páskagjöf fyrir hátíðina.
Styrktaraðilar skólans eru Heildverslun Karls Kristmanns sem og Vestmannaeyjabær. Við hvetjum ykkur því til að skrá ykkar barn hið fyrsta. Skráning fer fram hér.