Kristín Klara Óskarsdóttir og liðsfélagar hennar í íslenska U17 ára landsliðinu í knattspyrnu léku í dag síðasta leik sinn í seinni umferð undankeppni EM í Serbíu.
Fyrir leikinn í dag höfðu íslensku stelpurnar tapað báðum leikjum sínum naumlega, gegn Frökkum og Austurríki en serbneska liðið hafði unnið annan leik sinn, gegn Frökkum.
Kristín Klara lék síðasta hluta leiksins í liði Íslands og gerði virkilega vel úr þeim stöðum sem komu upp hjá henni í hægri bakvarðarstöðunni. Leikurinn vannst 5:0 og gerði íslenska liðið því úti um vonir Serba að komast á EM.
Kristín lék í 3 af 5 leikjum Íslands í undankeppninni samanlagt en stelpurnar voru í raun einungis einum sigri frá því að komast á lokamótið þar sem 8 bestu þjóðir Evrópu leika.