Fótbolti - Halldór Jón aftur til ÍBV

10.mar.2026  07:00

Knattspyrnumaðurinn Halldór Jón Sigurður Þórðarson hefur gengið til liðs við ÍBV á nýjan leik frá Fylki. Halldór er fæddur 1996 og hefur leikið 196 meistaraflokksleiki. Hann leikur aðallega sem sóknarmaður en hefur eiginleika til að spila fleiri stöður á vellinum.

Halldór lék með ÍBV árin 2022 og 2023 en þá kom hann til liðsins frá Víkingi. Hann skoraði þrennu í góðum sigri á Valsmönnum 2022 á Hásteinsvelli sem flestir Eyjamenn muna vel eftir.

Halldór gerir tveggja ára samning við ÍBV en það að hann þekki aðstæður í Eyjum er öflugt og kemur hann til með að koma sér hratt og örugglega í takt við liðið.

Knattspyrnuráð bindur miklar vonir við leikmanninn og vonast til að hann nái að styrkja lið ÍBV fyrir baráttuna í Bestu deildinni.

Mynd: Hafliði Breiðfjörð