Emil Gautason skoraði í 5-1 sigri Íslands á Eistlandi í kvöld er liðin mættust á Þróunarmóti UEFA U16 í Færeyjum. Ísland mætir Bosníu og Herzegóvínu í næsta leik sínum á mótinu á sunnudag.
Emil átti stóran þátt í fjórða marki Íslands í leiknum þegar hann lét boltann renna í gegnum klofið á sér áður en boltinn barst á markaskorarann Emil Eldar í uppbyggingu sóknarinnar.
Emil skoraði síðan sjálfur fimmta mark Íslands í leiknum þegar hann átti frábært hlaup í gegnum vörn Eista og skoraði með fyrstu snertingu í fjær hornið, óverjandi fyrir markvörðinn.
Hér má sjá leikinn en mark Emils kemur á 84. mínútu leiksins.
Glæsilega gert hjá Emil sem hefur staðið sig frábærlega og unnið vel fyrir veru sinni í íslenska U-16 ára landsliðinu.