Fótbolti - Sigurður, Heiðmar og Alexander skrifa undir samninga

10.feb.2025  15:00

Eyjamennirnir Sigurður Valur Sigursveinsson, Heiðmar Þór Magnússon og Alexander Örn Friðriksson hafa allir skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild ÍBV sem gildir út keppnistímabilið 2027.

Strákarnir hafa allir leikið með yngri flokkum ÍBV upp allan sinn feril og eiga einnig allir systkini sem hafa leikið eða leika enn með meistaraflokkum ÍBV.

Stjórn knattspyrnudeildar bindur miklar vonir við að framtíð leikmannanna verði björt og að þeir geti aðstoðað liðið í þeirri baráttu sem framundan er á næstu árum inni á vellinum.

Sigurður er fæddur 2008 og lék 13 leiki fyrir KFS í 4. deildinni á síðustu leiktíð, þá lék hann fyrsta leik sinn fyrir meistaraflokk ÍBV um helgina þegar liðið mætti Stjörnunni í Lengjubikarnum.

Heiðmar er einnig fæddur 2008 en hann lék 17 leiki og skoraði í þeim 9 mörk á síðustu leiktíð með KFS og lék eins og Sigurður sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk ÍBV nú um helgina.

Alexander Örn er fæddur 2007 og lék 23 leiki á síðustu tveimur tímabilum með KFS í 3. og 4. deildinni, í þeim skoraði hann tvö mörk. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk ÍBV, gegn Stjörnunni um helgina, líkt og Heiðmar og Sigurður.