Fótbolti - Lilja lék í tveimur stórsigrum gegn Færeyingum

02.feb.2025  15:00

Lilja Kristín Svansdóttir lék í tveimur stórsigrum íslenska u16 ára landsliðsins gegn Færeyingum um helgina. Hún lék með fyrirliðabandið um tíma í seinni leiknum sem vannst 7:0.

Íslenska landsliðið skipað leikmönnum 16 ára og yngri lék tvo leiki gegn Færeyingum í Miðgarði um helgina. Fyrri leikurinn var á föstudaginn þar sem íslenska liðið sigraði 6:0 og sá seinni fór fram í dag og lauk með 7:0 sigri íslenska liðsins.

Lilja lék með fyrirliðabandið síðustu 10 mínútur leiksins en hún lék í stöðu vinstri bakvarðar allar 180 mínútur leikjanna.

Knattspyrnudeildin hlakkar til að fylgjast áfram með Lilju standa sig vel í hennar verkefnum.