Fótbolti - Ársrit knattspyrnudeildar ÍBV 2024

24.des.2024  13:00

Ársrit knattspyrnudeildar ÍBV fyrir árið 2024 er komið út.

Í blaðinu má sjá viðtöl við þjálfara meistaraflokks kvenna og karla, þá Þorlák Árnason og Jón Ólaf Daníelsson. Í blaðinu má einnig sjá texta frá fyrirliðum meistaraflokkanna, Alex Frey Hilmarssyni og Guðnýju Geirsdóttur.

Yfirferð frá Ellerti Scheving framkvæmdastjóra ÍBV á yngri flokka starfinu má einnig finna í blaðinu.

Knattspyrnudeild vill þakka öllum styrktaraðilum deildarinnar fyrir árið og einnig sjálfboðaliðum, leikmönnum og starfsmönnum ungum sem öldnum.

Blaðið má sjá með því að smella hér.