Fótbolti - Omar Sowe til ÍBV

04.nóv.2024  19:15

Knattspyrnumaðurinn Omar Sowe hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV. Hann kemur til liðs við félagið frá Leikni Reykjavík þar sem hann hefur leikið síðustu tvö tímabil.

Omar er frá Gambíu en hann er 24 ára framherji sem skoraði 25 deildarmörk í 41 leik fyrir Leikni á síðustu tveimur leiktíðum. Omar kom fyrst til Íslands árið 2022 og lék með Breiðabliki þar sem hann skoraði fjórum sinnum í 20 leikjum.

Omar var á mála hjá NY Red Bulls í töluverðan tíma þar sem hann lék með varaliði félagsins og U23 ára liði þeirra en auk þess lék hann einn leik með aðalliði félagsins í MLS deildinni 2021-22.

Knattspyrnuráð bindur miklar vonir við það að koma leikmannsins til ÍBV verði til þess að hjálpa liðinu til að ná markmiðum sínum á næstu árum.