Ársrit knattspyrnudeildar ÍBV 2022 er komið út og er hægt að skoða með því að smella hér.
Í blaðinu er rætt við leikmenn og þjálfara úr karla og kvennaliði félagsins, rætt er um yngri flokka starfið og einnig KFS. Í blaðinu eru skemmtilegar myndir frá sumrinu og jólakveðjur frá styrktaraðilum.
Knattspyrnuráð ÍBV vill óska öllum gleðilegra jóla og þakka fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða. Ráðið vill sérstaklega þakka öllum bakhjörlum og sjálfboðaliðum fyrir stuðninginn á þessu ári.
Áfram ÍBV, alltaf, alls staðar!