Hermann Þór Ragnarsson hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild ÍBV og kemur til með að leika með liðinu í Bestu deildinni þegar hún hefst í apríl.
Hermann er 19 ára gamall sóknarmaður sem lék með Sindra í ár og skoraði þar 13 mörk í 19 leikjum. Hann var þar lykilmaður í liði sem vann 3. deildina.
Velkominn til ÍBV!
Myndin sem fylgir fréttinni er tekin af Guðmundi Björgvini Jónssyni.