Haley og Eiður Aron best
Lokahóf meistaraflokka félagsins í knattspyrnu var haldið sl. laugardag. Stelpurnar kláruðu sína leiki 1. október og enduðu í 6. sæti í Bestu deild kvenna. Strákarnir kláruðu sína leiki á laugardag, breyting var á mótinu þeirra en leikin var tvöföld umferð og síðan var deildinni skipt í efri og neðri hluta. Þar sem þeir enduðu í 9. sæti eftir deildarkeppnina þá léku þeir í neðri hlutanum þegar deildinni var skipt upp, en þar náðu þeir að hækka sig upp um eitt sæti og enduðu því í 8. sæti Bestu deildar karla.
Bræðrasynirnir Jón Ingason og Sigurður Arnar Magnússon voru heiðraðir fyrir að hafa náð að spila 100 leikina sína í sumar og svo voru eftirtaldar viðurkenningar veittar til efstu flokka félagsins:
Meistaraflokkur kvenna:
Besti leikmaðurinn: Haley Marie Thomas
ÍBV-ari: Guðný Geirsdóttir
Markahæsti leikmaðurinn: Olga Sevcova
Fréttabikarinn/efnilegasti leikmaðurinn: Thelma Sól Óðinsdóttir
Meistaraflokkur karla:
Besti leikmaðurinn: Eiður Aron Sigurbjörnsson
ÍBV-ari: Alex Freyr Hilmarsson
Markahæsti leikmaðurinn: Andri Rúnar Bjarnason
Fréttabikarinn/efnilegasti leikmaðurinn: Arnar Breki Gunnarsson
2. flokkur kvenna
Besti leikmaðurinn: Þóra Björg Stefánsdóttir
ÍBV-ari: Selma Björt Sigursveinsdóttir
Mestu framfarir: Helena Jónsdóttir
Markahæsti leikmaðurinn: Þóra Björg Stefánsdóttir
2. flokkur karla
Besti leikmaðurinn: Ólafur Haukur Arilíusson
ÍBV-ari: Dagur Einarsson
Mestu framfarir: Karl Jóhann Örlygsson
Markahæsti leikmaðurinn: Eyþór Orri Ómarsson