Skráning hafin í söngvakeppni barna á Þjóðhátíð 2022

11.júl.2022  10:16

Skráning í árlega söngvakeppni barna á Þjóðhátíð er hafin og fer fram á netinu eins og fyrr. Foreldrar skrá börnin sín í gegnum Google forms og þurfa því að hafa google reikning til að framkvæma skráningu.

Óskað er eftir nöfnum keppenda og kennitölum þeirra sem og nafni og símanúmeri forráðamanns. Til að skráning teljist gild þarf að skila inn lagi annað hvort með því að setja inn tengil á Youtube, Spotify eða aðrar tónlistarveitur. Einnig er mögulegt að skila inn hljóðskrá.

Mælst er til þess að lagaval sé miðað við það að hefðbundin hljómsveit geti flutt lögin. Forráðamenn keppninnar áskila sér rétt til þess að óska eftir öðru lagi sé það ill framkvæmanlegt. Hljómsveit æfir með keppendum á fimmtudeginum fyrir Þjóðhátíð, 28. júlí. Að lokinni skráningu verður haft samband við foreldra keppenda og keppendum útvegaður tími til æfinga umræddan fimmtudag. Mæting á æfingu er skilyrði fyrir þátttöku.

 

Eldri hópur (börn fædd 2009-2013), skráning hér.

Yngri hópur (börn fædd 2014 og síðar), skráning hér.