Fótbolti - Hans Mbongo til liðs við ÍBV

12.maí.2022  14:00

Hollenski knattspyrnumaðurinn Hans Mpongo er kominn til ÍBV á lánssamningi en Hans er á mála hjá enska úrvalsdeildarliðinu Brentford FC.

Hans er 19 ára sóknarmaður og kemur til með að styrkja sóknarlínu liðsins í komandi átökum í Bestu Deildinni. Hann var meðal áhorfenda í gær er ÍBV tók á móti KR á Hásteinsvelli og hefur nú þegar fengið leikheimild með liðinu.

ÍBV sækir FH-inga heim á sunnudaginn og verður gaman að fylgjast með Hans í hans fyrsta leik fyrir félagið. 

Photos: Mark Fuller/obfcpics.co.uk