Ragna Sara Magnúsdóttir, varnarmaður ÍBV, er þessa dagana á æfingum með U19 ára landsliði kvenna en liðið hóf æfingar í gær og standa þær yfir þangað til á morgun.
Margrét Magnúsdóttir er nýr þjálfari landsliðsins og valdi Rögnu í sinn fyrsta hóp. Í apríl leikur U19 ára landsliðið í milliriðli í undankeppni EM 2022 og verður hópurinn fyrir það verkefni tilkynntur í mars.
ÍBV óskar Rögnu Söru til hamingju með valið og áframhaldandi velgengni á fótboltavellinum.