Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving mun leika í marki ÍBV á leiktíðinni í Pepsi Max-deild kvenna en hún kemur til liðsins á láni frá Val. Auður er einungis á 19. aldursári en hún lék tvo leiki með Val í deildinni 2017 og 2018.
Auður lék einnig með ÍBV í fyrra þar sem hún spilaði 14 af 16 leikjum liðsins í deild, auk þess að leika nokkra leiki með 2. flokki félagsins. Hún á marga landsleiki að baki með yngri landsliðum Íslands, samtals á hún 21 leik þar en 10 af þeim komu með U19 ára landsliðinu, á síðustu þremur árum.
Auður kemur til félagsins á lánssamningi sem gildir út leiktíðina en hún var valin í U19-ára landsliðið á dögunum og mun þar hitta fyrir Clöru Sigurðardóttur og Rögnu Söru Magnúsdóttur sem og Kristjönu R. Kristjánsdóttur Sigurz sem lék með ÍBV á síðustu leiktíð.