Yngri flokkar - 19 leikmenn ÍBV valdir hjá HSÍ

15.jan.2021  14:23

Kynning á verkefnum sumarsins

Þjálfarar yngri landsliða HSÍ hafa valið stóra hópa vegna verkefna næsta sumar, um er að ræða U-21, U-19 og U-17 ára landslið karla og U-19 og U-17 ára landsliðs kvenna.

Á næstu dögum munu þjálfarar liðanna funda með leikmönnum og fara yfir verkefni sumarsins ásamt undirbúningi. Allir fundirnir fara fram á Microsoft Teams og verða þeir auglýstir á Facebook síðum landsliðanna. Ekki er um að ræða æfingar að þessu sinni, stórir hópar leikmanna eru valdir fyrir fundina til að sem flestir fái kynningu á því sem framundan er. Þó leikmenn séu ekki á þessum lista koma þeir þó ennþá til greina í verkefni sumarsins.

ÍBV á 19 fulltrúa í þessum 5 liðum og óskum við þeim til hamingju.

 

Eftirtaldir leikmenn voru valdir:

U-21 karla

Ívar Logi Styrmisson

 

U-19 kvenna

Aníta Björk Valgeirsdóttir

Bríet Ómarsdóttir

Harpa Valey Gylfadóttir

Helga Stella Jónsdóttir

 

U-19 karla

Arnór Viðarsson

Gauti Gunnarsson

 

U-17 kvenna

Amelía Einarsdóttir

Elísa Elíasdóttir

Helena Jónsdóttir

Sara Dröfn Ríkharðsdóttir

Sunna Daðadóttir

Þóra Björg Stefánsdóttir

 

U-17 karla

Andrés Marel Sigurðsson

Elmar Erlingsson

Hinrik Hugi Heiðarsson

Ívar Bessi Viðarsson

Kristján Kjartansson

Nökkvi Guðmundsson