Clara og Telmo best - Gary með gullskóinn
Sumarlok félagsins voru haldin sl. laugardag, þrátt fyrir að gengi liðanna okkar hafi ekki verið eins og við óskuðum eftir þá fengu ungir iðkendur tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og gefur góð fyrirheit fyrir næsta sumar. Eins var það einkar ánægjulegt að markahrókurinn Gary Martin náði að tryggja sér gullskóinn fyrr um daginn og birtist með hann þegar líða fór á hófið, en þetta er í fyrsta skipti sem handhafi gullskósins kemur frá liði í fallsæti.
Veittar voru viðurkenningar til elstu flokka félagsins og nokkrir starfsmenn heiðraðir.
Meistaraflokkur kvenna:
Besti leikmaðurinn - Clara Sigurðardóttir
ÍBV-ari - Emma Rose Kelly
Mestu framfarirnar - Sesselja Líf Valgeirsdóttir
Markahæsti leikmaðurinn - Cloé Lacasse
Fréttabikarinn / efnilegasti leikmaðurinn - Ragna Sara Magnúsdóttir
Meistaraflokkur karla:
Besti leikmaðurinn - Telmo Castanheira
ÍBV-ari - Óskar Elías Zoega Óskarsson
Markahæsti leikmaðurinn - Gary Martin
Fréttabikarinn / efnilegasti leikmaðurinn - Róbert Aron Eysteinsson
2. flokkur karla:
Besti leikmaðurinn - Nökkvi Már Nökkvason
ÍBV-ari - Jón Kristinn Elíasson
Mestu framfarir - Eyþór Daði Kjartansson
Markahæsti leikmaðurinn - Eyþór Orri Ómarsson
9 leikmenn fengu viðurkenningu fyrir fyrsta spilaða leikinn sinn með meistaraflokki;
Birgitta Sól Vilbergsdóttir 03.07.18 HK/Víkingur - ÍBV
Thelma Sól Óðinsdóttir 17.07.18 KR - ÍBV
Ragna Sara Magnúsdóttir 17.09.18 ÍBV - HK/Víkingur
Þóra Björg Stefánsdóttir 12.05.19 ÍBV - Þór/KA
Helena Jónsdóttir 27.05.19 ÍBV - Stjarnan
Róbert Aron Eysteinsson 27.05.18 Keflavík - ÍBV
Eyþór Orri Ómarsson 03.06.18 ÍBV - KR
Nökkvi Már Nökkvason 25.05.19 KA - ÍBV
Tómas Bent Magnússon 24.08.19 ÍA - ÍBV
Eyþór Daði Kjartansson 28.09.19 Stjarnan - ÍBV
Matt Garner var heiðraður fyrir að hafa spilað yfir 250 leiki með félaginu, en hann hefur tekið þá ákvörðun að leggja skóna á hilluna og þakkar ÍBV honum kærlega fyrir hans framlag til knattpyrnunnar í Eyjum.
Fyrrverandi og núverandi meðlimir í knattspyrnuráði kvenna voru heiðrað fyrir áralangt og gott starf.
Ólafur Tryggvason fyrir tveggja áratuga starf, Sigþóra Guðmundsdóttir og Aðalbjörg Skarphéðinsdóttir fyrir áratugastarf, Sigríður Inga Kristmannsdóttir, Lind Hrafnsdóttir, Ágústa Kjartansdóttir og Berglind Sigmarsdóttir fyrir áralangt starf.