Yngri flokkar - Fjórir frá ÍBV á æfingar hjá U-16 og U-20 í handbolta

02.nóv.2015  10:59

Það er mikið á gera í úrtaksæfingum hjá HSÍ á næstunni og verið að tilkynna æfingahópa þar.

 ÍBV á einn leikmann í U-16 markmanninn knáa Pál Eiríksson, einnig var verið að velja hóp hjá hinu ógnarsterka U-20 liði og þar á ÍBV þrjá fulltrúa þá Dag Arnarsson, Hákon Daða Styrmisson og Nökkva Dan Elliðason. ÍBV óskar þessum peyjum til hamingju með valið.