Yngri flokkar - Páll á æfingar hjá HSÍ

24.mar.2015  09:51
Páll Eiríksson markvörður 5.flokks  var í dag valin  ásamt 30 öðrum drengjum til æfinga með U-15 ára landsliði Íslands í handbolta. Æfingarnar fara fram í vikunni fyrir Páska í Garðabæ.
Þjálfarar liðsins eru Heimir Ríkharðsson og Magnús Kári Jónsson.
ÍBV óskar Palla innilega til hamingju með þennan árangur.