Yngri flokkar - Felix á æfingar hjá KSÍ

24.mar.2015  11:26
Felix Örn Friðriksson var í dag valin  ásamt 25 öðrum leikmönnum til æfinga með U-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll um næstu helgi.
Þjálfarar liðsins eru þeir Halldór Björnsson og Freyr Sverrisson.
ÍBV óskar Felix Erni innilega til hamingju með þennan árangur.