Yngri flokkar - Tvær frá ÍBV í U-19 hjá HSÍ.

19.mar.2015  08:28
Þær Erla Rós Sigmarsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir voru í gær valdar í lokahóp U-19 ára landsliðs Íslands í handbolta.  Liðið undirbýr sig nú fyrir undankeppni EM sem fram fer í Makedóníu dagana 17-19.apríl.
Þjálfarar liðsins eru Hilmar Guðlaugsson og Inga Friða Tryggvadóttir
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.