ÍBV og Barcelona hafa gengið frá samkomulagi um að fyrirliði liðsins Ana Maria Escribano gangi til liðs við ÍBV. ÍBV og Ana Maria hafa náð samkomulagi sín á milli og því ljóst að Ana Maria mun leika með ÍBV í sumar. Ana Maria er miðvörður með gríðarlega mikla reynslu en Ana Maria verður 32.ára í desember.
Þá er Rosie Sutton á leið til landsins frá Perth Glory í Ástalíu. Rosie er framherji en getur einnig leikið á kanti og fyrir aftan framherja.
Það ríkir mikill spenningur í herbúðum ÍBV með tilkomu Önu Mariu.
ÍBV stúlkur fóru í mjög vel heppnaða æfingaferð til Valencia á dögunum þar sem þær æfðu og tóku þátt í Valencia Cup. Eyjastúlkur sigruðu mótið með glæsibrag og máluðu Valencia bæ rauðan er leið á kvöld.