Aaron Spear er kominn til baka úr láni frá Víking í Reykjavík. Aaron Spear er 20 ára og er uppalinn hjá Plymouth. Þaðan var hann keyptur til Newcastle og kemur þaðan til ÍBV. Aaron skoraði 5 mörk í Pepsídeildinni 2011 í 11 leikjum en náði sér ekki á strik í fyrra og var lánaður til Víkings, þar sem hann skoraði 3 mörk í 11 leikjum. Aaron er mikið efni og mun eflaust styrkja leikmannahópinn.