Jón Ingason var í dag valinn í lokahóp U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu. Liðið leikur í næstu viku tvo vináttulandsleiki gegn Dönum ytra. Þetta er frábær árangur hjá Jonna þar sem 9 af 18 leikmönnum liðsins eru atvinnumenn. Jonni hefur í vetur átt fast sæti í meistaraflokki félagsins og leikið mjög vel.
Þjálfari liðsins er Kristinn R. Jónsson fyrrum þjálfari ÍBV.
ÍBV óskar Jonna innilega til hamingju með þennan árangur.