Þá er drátturinn í hinu árlega húsnúmerahappdrætti knattspyrnudeildar ÍBV klár. Útgefnir miðar voru 1900 stykki og dregið var úr seldum miðum. Vinningarnir eru 35 talsins og er fyrsti vinningur 100.000 kr gjafabréf frá Úrvali Útsýn. Drátturinn fór fram eins og undanfarin ár á skrifstofu sýslumannsins til að allt sé rétt gert.