Kvennalið ÍBV á tvo fulltrúa í liði seinni umferðar Íslandsmótsins í knattspyrnu. Þetta var gert ljóst nú í hádeginu í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar. Þær Danka Podovac og Shaneka Gordon voru báðar valdar en báðar áttu þær skínandi leiki þennan seinni hluta.
ÍBV óskar báðum leikmönnum innilega til hamingju með þennan árangur.