KSÍ hélt nú í hádeginu blaðamannafund þar sem tilkynnt var um val á landsliðshópnum sem fer til Algarve og tekur þátt í árlegu og mjög sterku æfingamóti. Sigurður Ragnar Eyjólfsson valdi 21 leikmann til að taka þátt í verkefninu. Elísa var búin að standa sig mjög vel báðar æfingahelgarnar á undan og uppskar eftir því. Þetta er gríðarlegur heiður fyrir Elísu sem hefur stefnt að þessu undanfarið ár. Landsliðið spilar 4.leiki í ferðinni, þann fyrsta 29.febrúar gegn Þjóðverjum í kjölfarið verður leikið gegn Svíum þann 5.mars og gegn Kínverjum þann 7.mars. Í lok ferðar er svo leikið um sæti.
ÍBV óskar Elísu innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.