Þórarinn Ingi Valdimarsson hefur verið valinn til æfinga með A-landsliði Íslands nú í janúar. Æfingarnar eru liður í undirbúningi fyrir tvo æfingaleiki sem liðið leikur gegn Japan og Svartfjallalandi. Æfingarnar fara fram í Reykjavík dagana 12-14.janúar. Þjálfarar liðsins eru Lars Lagerbeck og eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson.
Guðmundur Þórarinsson og Brynjar Gauti voru báðir valdir til æfinga með landsliði Íslands U-21. Æfingarnar fara fram 14.og 15.janúar á Reykjavíkursvæðinu. Þjálfarar liðsins eru Eyjólfur Sverrisson og eyjamaðurinn Tómas Ingi Tómasson.
Sigurður Grétar Benónýsson og Kristínn Skæringur Sigurjónsson voru báðir valdir til æfinga með landsliði Íslands U-17 Æfingarnar fara fram um næstu helgi á Reykjavíkursvæðinu. Þjálfarar liðsins eru Gunnar Guðmundsson og Freyr Sverrisson.
IBV óskar þessum leikmönnum innilega til hamingju með þennan árangur.