Hinn reynslumikli leikmaður Yngvi Borgþórsson hefur framlengt samning sinn við félagið út næsta tímabil. Yngvi verður því áfram í herbúðum ÍBV. Þetta er mikið fagnaðarefni fyrir stuðningsmenn liðsins, enda hefur Yngvi átt stóran og góðan stuðningsmannahóp. Í sumar var m.a. stofnaður ,,Stuðningsmannaklúbbur Yngva Bor" og er það með virkari stuðningsmannaklúbbum á landinu. Yngvi á að baki 194 leiki fyrir ÍBV og KFS og hefur skorað 56 mörk.