Það verður sannkallaður stórleikur á morgun (laugardag) þegar lið Grindavíkur kemur á Hásteinsvöll og etur kappi við lið ÍBV.
Leikurinn hefst kl. 14:00 og geta strákarnir tryggt sér Evrópusæti með sigri.
Allir Eyjamenn eru hvattir til að fjölmenna á völlinn í þessum síðasta leik knattspyrnusumarsins.
ÁFRAM ÍBV!!