U-19 ára landslið Íslands í knattspyrnu tryggði sér í vikunni rétt til að leika í milliriðli Evrópumóts landsliða 2012. IBV á einn fulltrúa í þessum hóp. Sísí Lára sem er á yngra ári tók þátt í tveimur leikjum af þremur sem verður að teljast mjög góður árangur hjá henni. Ísland byrjaði á því að leggja lið Slóveníu af velli 2-1. Í næsta leik sigruðum þær lið Kazakstan 3-0 og að lokum lið Wales 2-0.
IBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með þennan árangur.