Yngri flokkar - Frábær árangur hjá 3.flokki kvenna.

12.sep.2011  11:37
3.flokkur kvenna hefur staðið sig mjög vel í sumar.  Stúlkurnar sigruðu sinn riðill og tóku því þátt í úrslitakeppninni.  Þar byrjuðu okkar stúlkur á því að sigra lið Fjarðabyggðar/Leiknis 7-0 og daginn eftir lið BÍ/Bolungarvíkur  6-2.  Með þessum sigrum tryggði IBV sér sæti í undanúrslitum gegn Þór frá Akureyri.  Þór sigraði leikinn 4-0  og lenti IBV því í 3.sæti sem telst frábær árangur.
 
IBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju.