Fótbolti - Þjálfarateymi ÍBV styrkist fyrir lokabaráttuna

11.sep.2011  22:10

ÍBV mun fá góðan liðsstyrk undir lok Íslandsmótsins, því Magnús Gylfason mun bætast við í þjálfarateymi ÍBV í síðustu leikjum mótsins.

 

Magnús er Eyjamönnum vel kunnugur því hann þjálfaði liðið á árunum 2003 og 2004, seinna árið náði ÍBV einmitt mjög góðum árangri og endaði í 2.Sæti deildarinnar.

 

Magnús mun síðan taka við þjálfun ÍBV liðsins að tímabili loknu af Heimi Hallgrímssyni. 

Heimir Hallgrímsson hefur þjálfað ÍBV frá 2004, og er því að ljúka sínu 6 tímabili, sem þjálfari liðsins,. Hann hefur náð frábærum árangri með liðið og unnið gríðarlega ósérhlífið starf fyrir félagið.

 

Heimir óskaði sjálfur eftir því að fá að stíga til hliðar að tímabili loknu og gefa nýjum þjálfara tækifæri til að setja sig strax inn í hlutina,  svo að hægt sé að byrja strax að undirbúa næsta tímabil þegar þessu lýkur.

 

Heimir Hallgrímsson mun stýra liðinu út tímabilið, enda hefur hann náð frábærum árangri með liðið í sumar líkt og undanfarin ár.