Baráttuglaðir Þórsarar ætla að mæta til Eyja á sunnudaginn til að ná sínum þriðja sigri á ÍBV í sumar. Eyjamenn ætla þó að standa saman og sjá til þess að svo verði ekki.
Tryggvi Guðmundsson og Finnur Ólafsson eru í leikbanni, auk þess sem Denis Sytnik er meiddur.
Það mun því ekki veita af því að strákarnir snúi bökum saman og stuðningsmenn breyti sér í 12 manninn!
Þórsarar og Mjölnismenn þeirra munu væntanlega selja sig dýrt þar sem þeirra helsta ósk er að KR verði Íslandsmeistari í ár!
Stuðningsmenn ÍBV ætla að sjá til þess að verja Hásteinsvöll gegn slíkum óskum.
Þú getur því verið 12 maðurinn á sunnudaginn með því að mæta á völlinn!
Leikurinn hefst kl. 1600 á Hásteinsvelli.
ÁFRAM ÍBV!!