Vinaminni kaffihús ætlar að taka á móti stuðningsmönnum ÍBV á fimmtudaginn kl. 20:00.
Þar gefst stuðningsmönnum ÍBV gott tækifæri á að ræða boltan í sumar og brýna sverðin fyrir lokabaráttuna í Pepsí deildinni.
Heimir Hallgrímsson þjálfari liðsins verður með stutta framsögu. í kjölfarið gefst tækifæri til að ræða við leikmenn og aðra stuðningsmenn um næstu leiki.
Næsti leikur ÍBV er á sunnudaginn kemur gegn Þór frá Akureyri kl. 16:00 á Hásteinsvelli.
Láttu sjá þig á Vinaminni kl. 20:00 á fimmtudaginn, kíktu í einn kaffi og ræddu um boltan.
Allir velkomnir. ÁFRAM ÍBV!