Berglind Björg Þorvaldsdóttir framherji IBV hefur verið valin í A-landsliðið fyrir leiki gegn Noregi og Belgíu sem fram fara í næstu viku á Laugardalsvelli. Þetta er mikill heiður fyrir Berglindi og IBV en Berglind hefur skorað 12.mörk fyrir iBV í úrvalsdeildinni í sumar. Berglind sem var meidd framan af ári hefur verið að bæta leik sinn jafnt og þétt í sumar og er þetta því góður bónus fyrir hana.
IBV óskar Berglindi innilega til hamingju með þenna frábæra árangur.