Það verður mikilvægur leikur á Hásteinsvelli á morgun er ÍBV tekur á móti Fylki. Leikurinn hefst kl. 14.00 og er úrslitaleikur fyrir ÍBV um að tryggja sér 3.sæti deildarinnar. Stúlkurnar eru búnar að standa sig frábærlega í sumar og vonandi ná þær að tryggja sér sætið á morgun.
Við hvetjum alla bæjarbúa til að fjölmenna á völlinn og hvetja ÍBV til sigurs.
ÁFRAM IBV.