IBV stúlkurnar léku í Grindavík í gær gegn heimastúlkum. IBV byrjaði leikinn af miklum krafti og uppskar mark eftir 15.mínútur. Berglind Björg skoraði þá eftir glæsilegan einleik. Á 30.mínútu bætti Danka svo við stórglæsilegu marki beint úr aukaspyrnu. Vesna skoraði svo 3.mark IBV með góðu skoti úr teignum sem markvörður Grindavíkur varði en missti boltann inn. Staðan í hálfleik var 3-0. Í seinni hálfleik slökuðu okkar stúlkur full mikið á en náðu samt að skora þegar Berglind bætti sínu öðru marki við eftir fyrirgjöf Elínborgar. Góður 4-0 sigur í höfn.
Næsti leikur hjá stúlkunum er á laugardag er við tökum á móti Fylki á Hásteinsvelli kl. 14.00
Við hvetjum alla til að koma á völlinn og hvetja stúlkurnar til sigurs.
ÁFRAM IBV.