Kristín Erna Sigurlásdóttir var valin besti leikmaður 14.umferðar á Fótbolti.net. Kristín er vel að valinu komin enda átti hún stórleik gegn KR og skoraði glæsilegt mark. Sjá má viðtal við Kristínu á fotbolti.net í tilefni af útnefningunni.
Þá var Birna Berg í liði umferðarinnar enda hélt hún hreinu enn og aftur.
IBV óskar stúlkunum innilega til hamingju með þennan árangur.