Eyjólfur Sverrisson hefur valið landsliðshóp sinn fyrir landsleikina gegn Belgíu og Noregi sem fara fram 1 og 6 september í Reykjavík.
Brynjar Gauti Guðjónsson, Guðmundur Þórarinsson eru valdir inn í fyrsta skiptið. Þórarinn Ingi er á sínum stað áfram. Eiður Aron sem nýlega gekk í raðir Örebro hefur einnig verið valinn í hópinn.
Þetta eru frábærar fréttir fyrir félagið og strákana!
ÍBV óskar öllum þessum efnilegu strákum innilega til hamingju með landsliðssætið sitt.