Fótbolti - Engin hljóðfæri leyfð í Frostaskjólinu

23.ágú.2011  13:44
 Það er rétt að árétta það við stuðningsmenn ÍBV að engin hljóðfæri eru leyfð í Frostaskjólinu.
 
Þetta gildir um alla áhorfendur í Frostaskjólinu og hefur þessi regla verið virk síðastliðin þrjú ár hjá KR. Við viljum því benda stuðningsmönnum á að brýna raddböndin og styðja strákana til sigurs á fimmtudaginn. 
 
En eru laus sæti í hópferðina sem var auglýst hér á síðunni á mánudaginn, en skráningu í hana lýkur í hádeginu á morgun. 
 
 
ÁFRAM ÍBV