Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir í allt sumar KR-ÍBV !
Leikurinn er kl. 18:00 á fimmtudaginn (25 ágúst) í Frostaskólinu.
Nú þurfa allir Eyjamenn að snúa bökum saman og sameina krafta sína í Frostaskjólinu. ÍBV búningar, fánar, trommur, allt sem getur hjálpað til í baráttunni verður dregið fram hjá stuðningsmönnum ÍBV.
Sett hefur verið upp hópferð á fimmtudaginn. Sjá meira.
Fimmtudagurinn 25. ágúst
14:30 Brottför frá Vestmannaeyjum með Herjólfi
15:10 Rúta frá Landeyjarhöfn
18:00 KR-ÍBV
Brottför úr Frostaskjólinu strax eftir leik
22:00 Herjólfur frá Landeyjarhöfn
Verð:
Fullorðnir 6.900 kr (15 ára og eldri)
Börn 4.900 kr (14 ára og yngri )
Herjólfsmiði, rúta og miði á leikinn innifalið
Athugið takmarkað sætaframboð.
Hægt er að skrá sig í ferðina með því að senda fullt nafn og símanúmer á trausti@ibv.is
eða hringja á skrifstofu ÍBV 481-2060.
Skráningu lýkur á miðvikudaginn kl. 12:00.
Hægt verður að nálgast miðana sína frá kl. 12:00-16:00 á miðvikudaginn á skrifstofu ÍBV.
ÁFRAM ÍBV